|
Í aðalskipulagstillögunni sem nú er í umsagnarferli er gert ráð fyrir færslu Hringvegar suður fyrir Geitafell, að bökkum Dyrhólaóss, í göng undir Reynisfjall og á fjörukamb Víkurfjöru fyrir sunnan Víkurþorp. Ákvörðun um þetta var tekin síðla árs 2005, en þá hafði endurskoðun aðalskipulagsins staðið frá árinu 2001.
Vinna við skipulagsgerðina hélt áfram næstu 5 ár, en breytt veglína komst þó ekki inn á núgildandi aðalskipulag Mýrdalshrepps 2009-2025. Ástæðan var formgalli í meðferð málsins í sveitarstjórn þar sem oddviti reyndist hafa verið vanhæfur, með vísan til sveitarstjórnarlaga, við afgreiðslu tillögunnar á sveitarstjórnarfundi. Í bréfi Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra þann 3.5.2010 benti stofnunin á annan formgalla, sem var skortur á upplýsingum um áhrif vegarins á náttúru og samfélag í Mýrdal. Þar var vísað til stjórnsýslulaga.
Þann 14.10.2010 kynnti umhverfisráðherra í bréfi til oddvita Mýrdalshrepps þá niðurstöðu ráðuneytisins að það synjaði, með tilvísun til vanhæfis oddvita, staðfestingar þeim hluta aðalskipulags Mýrdalshrepps 2009-2025 sem varðar veglínu þjóðvegar nr. 1. Aðrir hlutar skipulagsins voru staðfestir og tók það gildi þann 22.12.2010.
Miklar deilur hafa verið frá upphafi í sveitarfélaginu um færslu vegarins og í sveitarstjórnarkosningum 2010 var veglínan helsta kosningamálið. Úrslit voru þau að B-listi Framfarasinna (fylgjandi veglínu) hlaut 198 atkvæði og 4 menn kjörna, E-listi Einingar (andvígur veglínu) hlaut 89 atkvæði og einn mann kjörinn, og H-listi Hamingjusamra hlaut 49 atkvæði.
Núverandi meirihluti er ákveðinn í að knýja í gegn nýja veglínu. Á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, haldinn mánudaginn 29.11. 2010, var áréttað að endurskoða skyldi Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2009 – 2025 sem sveitarstjórnin hafði þá nýlega samþykkt og sent ráðherra til staðfestingar: „Sveitarstjórn leggur áherslu á að endurskoðun skipulagsins taki mið af fyrri samþykktum sveitarstjórnar Mýrdalshrepps um að nýr vegur um Mýrdal verði á nýju skipulagi sem næst veglínu 3“. Vorið 2011 var samið við verkfræðistofuna VSÓ Ráðgjöf um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Drög að nýju aðalskipulagi 2012-2028 voru kynnt á íbúafundi 3.11.2011 og bárust ábendingar og athugasemdir frá 39 einstaklingum og félagasamtökum og 7 umsagnir frá lögbundnum umsagnaraðilum. Hluti þeirra er hér.
Meðal þeirra sem leggjast eindregið gegn veglínunni eru Vegagerðin, Umhverfisstofnun, Samtök verslunar og þjónustu - flutningasvið, Landvernd, Fuglavernd, félagar í samtökum íbúa og hagsmunaðila í Mýrdal, bændur sem eiga lönd sem veglínan fer um, auk fjölmargra einstaklinga með ólíka hagsmuni.
Sveitarstjórnin sendi drögin, að teknu tilliti til athugasemda, til Skipulagsstofnunar þann 11.1.2012, og eru hennar athugasemdir hér.
Sveitarstjórn hefur nú yfirfarið framkomnar ábendingar og athugasemdir og auglýst tillögu að nýju aðalskipulagi 2012-2028. Tillagan ásamt fylgigögnum verður til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og 19. mars til og með 4. maí. Tillöguna má einnig skoða á heimasíðu Mýrdalshrepps, www.vik.is.
Frestur til þess að skila inn athugasemdum við tillöguna er til og með 4. maí.
Ferill tillögunnar skv. skipulagslögum, 32. grein, er síðan þannig að þegar frestur til athugasemda er liðinn skal sveitarstjórn fjalla um tillöguna á nýjan leik. Í þeirri umfjöllun skal taka afstöðu til athugasemda sem borist hafa og þess hvort gera skuli breytingar á tillögunni. Þegar sveitarstjórn hefur samþykkt tillögu að aðalskipulagi skal sveitarstjórn senda Skipulagsstofnun tillöguna, ásamt athugasemdum og umsögn sveitarstjórnar um þær. Skipulagsstofnun skal innan fjögurra vikna frá því að tillaga að aðalskipulagi barst henni staðfesta aðalskipulagstillöguna og auglýsa hana í B-deild Stjórnartíðinda.
Telji Skipulagsstofnun að synja beri aðalskipulagi staðfestingar eða fresta staðfestingu þess að öllu leyti eða hluta skal hún senda tillögu um það til umhverfisráðherra innan fjögurra vikna frá því að henni barst tillaga að aðalskipulagi. Skal tillagan rökstudd með greinargerð þar sem fram skal koma hvort form- eða efnisgallar séu á afgreiðslu sveitarstjórnar eða gerð skipulagsins.
--------------------------
Hér að neðan er veglína 3 skv. núverandi skipulagstillögu sýnd á tveimur kortum. Á fyrra kortinu er hluti sveitarfélagsuppdráttar sem sýnir veglínuna vestan Reynisfjalls, að viðbættum skýringum með rauðum texta. Seinna kortið er tekið úr umhverfisskýrslunni og sýnir votlendið sem veglína 3 fer um.
Núverandi veglína og veglína 3 skv. aðalskipulagstillögu:

Veglína 3 skv. aðalskipulagstillögu og votlendi sem hún þverar:

|