Skip to content
Þú ert hér: Forsíða Blaðagreinar Blaðagreinar Vill sveitarstjórn Mýrdalshrepps ekki vegabætur á Gatnabrún?
Vill sveitarstjórn Mýrdalshrepps ekki vegabætur á Gatnabrún? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Erla Bil Bjarnardóttir   
Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 00:00

Erfitt er að trúa því að ábyrg sveitarstjórn sé mótfallin vegabótum í héraði, en það átti sér stað er sveitarstjórn Mýrdalshrepps kom saman þann 20. október síðastliðinn. Þá var meirihlutinn ósáttur við að samgönguráð setur á samgönguáætlun 2011-2022 framkvæmd að vegabótum á Gatnabrún í Mýrdal. Það er skylda Vegagerðarinnar að stuðla að öryggi á vegum landsins, og ættu vegfarendur síst að eiga von á að sveitastjórnir tefji framkvæmdaleyfi til vegabóta.

Meðfylgjandi skáletruð bókum úr fundargerð sveitarstjórnar Mýrdalshrepps 20. okt. sl.

„Auglýsing um umhverfismat tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun 2011 – 2022.
Í tillögum samgönguráðs er gert ráð fyrir því að á árunum 2015 – 2022 verði ráðist í endurbætur á veginum um Gatnabrún í Mýrdal. Meirihluti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps EE,IMB,SEG,ÓSB, bendir á að í drögum að nýju aðalskipulagi sveitarfélagsins er gert ráð fyrir nýjum láglendisvegi um bakka Dyrhólaóss og í gegnum Reynisfjall, sem mun að mestu leysa af hólmi veginn um Gatnabrún. Sveitarstjórn leggst þó ekki gegn þjónustu og eðlilegu viðhaldi á veginum um Gatnabrún, en bendir á að sá vegur getur aldrei þjónað íbúum landsins á sama hátt og láglendisvegur um Mýrdal. Á almennum íbúafundi sem haldinn var í Leikskálum s.l. þriðjudag kom þetta mál til umræðu og fram kom skýr afstaða meirihluta fundarmanna til þess að leggja áherslu á láglendisveg um Mýrdal.“

Hvernig ber að skilja þessi viðbrögð meirihlutans í Mýrdal?

Meirihlutinn vinnur að endurskoðun aðalskipulags Mýrdals 2012-2028, með því megin markmiði að koma á skipulagið svokölluðum „láglendisvegi“ fyrir þjóðveg 1 sem lægi um Dyrhólahverfi, eftir bökkum Dyrhólaós, um Reynishverfi með gati gegnum Reynisfjall og á bökkum Víkurfjöru. Þótt meirihlutanum takist að koma veglínunni á aðalskipulagið er hún ekki í tillögum samgönguráðs að samgönguáætlun 2011 – 2022 og engin vilyrði hafa verið gefin um framkvæmdina. Er næsta víst að sú framkvæmd kemst ekki á samgönguáætlun fyrr en eftir um 25 ár, það er árið 2037.

Hvers eiga íbúar og vegfarendur að gjalda ef brýnar vegabætur á Gatnabrún eru ekki vel þegnar af núverandi sveitarstjórn?

Sú er ritar þessa grein er í Samtökum íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal, er heldur úti upplýsingarvefnum www.myrdalur.is

Erla Bil Bjarnardóttir

Greinin birtist í Bændablaðinu fimmtudaginn 10. nóvember, 2011

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 20:22
 

Skráning á póstlista