| Tillaga að aðalskipulagi 2009-2025 |
|
|
|
| Skrifað af: Kjartan Jónsson |
| Föstudagur, 26. júní 2009 16:00 |
|
Tillaga að aðalskipulagi 2009-2025 fyrir Mýrdalshrepp var samþykkt af skipulags- og bygginganefnd og sveitarstjórn í mars síðast liðnum. Mýrdalshreppur hefur nú birt tillöguna ásamt fylgigögnum á vef sveitarfélagsins, www.vik.is Tillagan hefur verið send lögformlegum umsagnaraðilum sem eru Siglingastofnun, Landbúnaðarráðuneyti, Vegagerðin, Flugmálastjórn, Umhverfisstofnun, Fornleifavernd ríkisins, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Skipulagsnefnd kirkjugarða, Landgræðslan, Almannavarnarnefnd og nágrannasveitarfélög. Óskað er eftir að umsagnir berist fyrir 10. júlí n.k. Þegar lögformlegir umsagnaraðilar hafa skilað inn umsögnum mun skipulags- og bygginganefnd fjalla um þær, meta hvort þær leiði til breytinga á skipulagstillögunni, og afgreiða hana að nýju frá nefndinni til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn. Þegar sveitarstjórn hefur afgreitt skipulagstillöguna mun tillagan verða auglýst og kynnt á opnum íbúafundi samanber 18. grein skipulags- og byggingarlaga: “Í auglýsingu skal hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna innan ákveðins frests sem eigi skal vera skemmri en sex vikur frá birtingu auglýsingar.” Samkvæmt upplýsingum frá Gísla Gíslasyni skipulagfulltrúa Mýrdalshrepps má gera ráð fyrir að íbúafundurinn verði haldinn í september. Við hverjum alla til að kynna sér tillöguna vel. |
| Síðast uppfært: Laugardagur, 17. október 2009 19:31 |