| Um 40 athugasemdir bárust við skipulagstillöguna |
|
|
|
| Skrifað af: Kjartan Jónsson |
| Miðvikudagur, 24. mars 2010 20:20 |
|
Samkvæmt upplýsingum frá sveitarstjóra Mýrdalshrepps bárust um 40 athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu og skrifuðu margir aðilar undir sumar athugasemdanna. Skipulagstillagan, ásamt svörum þeirra sem gerðu athugasemdir, var samþykkt með nokkrum breytingum á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps þann 1. mars 2010. Athugasemdir sem sveitarstjórn tók undir varða einkum fækkun á göngleiðum og reiðleiðum. Í engu er tekið tillit fjölmargra athugasemda um breytta legu Suðurlandsvegar um Mýrdal, leið 3 samkvæmt aðalskipulagstillögunni. Samþykkt tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 verður send Skipulagsstofnun á næstunni með óskum um að hún hljóti staðfestingu ráðherra. Í viðhengi eru athugasemdir sem 90 íbúar og eigendur lands eða fasteigna í Mýrdalshreppi sendu inn. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 24. mars 2010 21:00 |