Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Aðalskipulagstillagan send Skipulagsstofnun til athugunar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Sunnudagur, 20. september 2009 21:07

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Mýrdalshrepps þann 15. september 2009 var samþykkt með 4 atkvæðum að senda fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 til Skipulagsstofnunar til athugunar og að hún skyldi síðan auglýst skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga. Varaformaður nefndarinnar, Steinþór Vigfússon, sat hjá og lagði fram bókun, sjá fundargerð. Fjórir af fimm nefndarmönnum ítrekuðu fyrri bókun skipulags og byggingarnefndar frá 5. mars 2009.

Á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps þann 17. september 2009 var fundargerð fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 15. september samþykkt. Sveinn Þórðarson varamaður sat fund sveitarstjórnar í stað Þórhildar Jónsdóttur oddvita. Eftirfarandi var bókað í fundargerð:

Sveinn P, Sif og Sveinn Þ. leggja fram bókun:
Við vísum í bókun Sveins P. og Sifjar frá fundi sveitarstjórnar frá 18. mars og hörmum að skipulags- og byggingarnefnd skuli ekki hafa tekið tillit til röksemda lögboðinna umsagnaraðila sem lýsa efasemdum um veglínu stofnvegar um Mýrdal sem er til umfjöllunar í tillögu að aðalskipulagi. Hins vegar er brýnt að nýtt aðalskipulag taki gildi sem fyrst og við samþykkjum því að tillagan sé send Skipulagsstofnun til athugunar.

B-listinn óskar eftir fundarhléi og leggja fram tillögu:
Fulltrúar B-listans leggja til að frestað verði að senda tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps til Skipulagsstofnunar og hún tekin til afgreiðslu þegar oddviti Mýrdalshrepps sitji fund. Hér er um gríðarlega veigamikið mál að ræða og margoft hefur verið greitt atkvæði um framtíðar veglínu um Mýrdal í sveitarstjórn Mýrdalshrepps.

D-listinn óskað eftir fundarhléi.

Tillaga B-listans er felld með 3 atkvæðum (SP, SH, SÞ) gegn 2 (EE, KP).

Til skýringar má geta þess að meirihluti D-lista klofnaði í afstöðu til aðalskipulagstillögunnar á fundi sveitastjórnar 18. mars s.l. þegar oddviti Mýdalshrepps greiddi atkvæði með tillögunni ásamt fulltrúum B-listans.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 01. nóvember 2009 21:41
 

Skráning á póstlista