Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Fuglar Dyrhólaóss Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jóhann Óli Hilmarsson   
Laugardagur, 04. febrúar 2012 20:07

Jaðrakanar hvílast við Dyrhólaós að kvöldi 22. apríl 2010. Ljósm. JÓH.

Hér er minnisblað frá febrúar 2012 sem Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar, hefur tekið saman um fuglalíf í og við Dyrhólaós.

Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Fuglar Dyrhólaóss.pdf)Fuglar Dyrhólaóss.pdf 81 Kb
Síðast uppfært: Mánudagur, 06. febrúar 2012 07:37
 
Veðurfar í Mýrdal og nágrenni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Einar Sveinbjörnsson   
Laugardagur, 04. febrúar 2012 20:44

Fræðslunet Suðurlands, Háskólafélag Suðurlands og Kötlusetur buðu til námskeiðs um staðbundið veðurfar í Mýrdal og nágrenni þann 24. janúar í Vík.  Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni ehf flutti erindi á námskeiðinu, og veitti hann góðfúslega leyfi til að birta glærur frá námskeiðinu á myrdalur.is.  Þess ber að geta að vindrósir fyrir Vatnsskarðshóla er frá Veðurstofunni.

 

Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Veðurfar Vík_2012.pdf)Veðurfar Vík_2012.pdf 3349 Kb
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 06:18
 
Kynningarfundur með landeigendum um nýja veglínu 5. janúar 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 10. janúar 2012 08:22

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps bauð landeigendum á svæði væntanlegrar nýrrar veglínu um Mýrdal til kynningarfundar um málið í Leikskálum fimmtudaginn 5. janúar kl. 20:00. Til fundarins var boðað á vef sveitarfélagsins, www.vik.is, þriðjudaginn 3. janúar. Í fundarboði segir: Á fundinum verða lagðar fram og kynntar nákvæmari teikningar af þeim svæðum sem væntanlegur vegur fer um.

Í upphafi fundar las Guðni Einarssons frá Þórisholti upp yfirlýsingu frá 10 landeigendum og gekk síðan af fundi. Að yfirlýsingunni standa eftirtaldir landeigendur:

Ásmundur Sæmundsson Hryggjum
Þorsteinn Gunnarsson Vatnskarðshólum
Eva Dögg Þorsteinsdóttir Garðakoti
Helgi Númason Norðurgarði
Atli Hróbjartsson Brekkum
Guðni Einarsson Þórisholti
Grétar Einarsson Þórisholti
Guðrún María Gunnarsdóttir Reynisholti 2 og 3
Ólafur Guðjónsson Kvíabóli
Jakobína Ragnarsdóttir Görðum


Yfirlýsingin er hér að neðan.

Minnisblað sem sveitarstjóri ritaði eftir fundinn er í viðhengi.



Viðtakandi:

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps
Austurvegi 17
870 Vík

Við undirritaðir landeigendur í Mýrdalshreppi lýsum furðu okkar á vinnubrögðum skipulags- og byggingarnefndar við boðun kynningarfundar um nýja veglínu með landeigendum í Mýrdal í kvöld.

Til fundarins er boðað með einungis tveggja daga fyrirvara með tilkynningu á vef sveitarfélagsins þrátt fyrir að fundurinn hafi verið löngu ákveðinn samanber fundargerð nefndarinnar frá 8. desember, en hún var ekki birt á vef sveitarfélagsins fyrr en í gær, 4. janúar.

Þessi stutti fyrirvari er óskiljanlegur. Svo virðist sem skipulags- og byggingarnefnd ætlist til þess að landeigendur og aðrir hagsmunaaðilar fari daglega inn á vef sveitarfélagsins til að athuga hvort þeir séu boðaðir á fund. Ætla mætti að þeir landeigendur sem ekki eru búsettir í sveitarfélaginu séu óvelkomnir þar sem fundurinn er boðaður með svo stuttum fyrirvara.

Í plagginu „Viðbrögð við athugasemdum“ dagsett í desember 2011 sem birt var á vef sveitarfélagsins í gær segir: „ ... unnt hefði verið að hafa enn meira samráð í skipulagsvinnunni en lög gera ráð fyrir. Til að bregðast við þessum ábendingum mun Mýrdalshreppur boða til fundar með landeigendum“.

Okkur er fyrirmunað að sjá að tilgangurinn með þessum fundi sé að bæta fyrir skort á samráði við landeigendur í skipulagsvinnunni. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. desember s.l. breytingu á aðalskipulaginu og framlagningu þess til Skipulagsstofnunar. Kynning á löngu teknum ákvörðunum sem teknar voru án viðhlítandi samráðs við okkur um nýja veglínu í gegnum eignarlönd okkar, sem við höfum mótmælt með sterkum rökum og greinargerðum, er ekki samráð, heldur framhald á þeim yfirgangi sem við og aðrir eigendur lands og fasteigna höfum mátt þola af sveitarstjórn Mýrdalshrepps.

Við mótmælum þessum vinnubrögðum sveitarstjórnar og skipulags- og byggingarnefndar Mýrdalshrepps harðlega og sjáum ekki tilgang í að taka þátt í sýndarmennsku af því tagi sem fundur þessi ber  augljósan vott um.

Í Mýrdalshreppi, 5. janúar 2012

Afrit:

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík

 

Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Minniblað frá kynningarfundi um nýja veglínu um Mýrdal.pdf)Minniblað frá kynningarfundi um nýja veglínu um Mýrdal 176 Kb
Síðast uppfært: Laugardagur, 04. febrúar 2012 19:58
 
Fjöldi ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi 2001-2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Föstudagur, 09. desember 2011 12:20

Hér eru upplýsingar um fjölda ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi árin 2001-2010.

Á þessu tímabili hefur leiðin Vík-Jökulsá lokast að meðaltali í 0,7 daga á ári og Mýrdalssandur hefur lokast í 0,4 daga á ári. Í 5 ár af 10 lokuðust leiðirnar aldrei af völdum veðurs eða ófærðar.

Nánar...
 
Umsagnir um drög að aðalskipulagstillögu Mýrdalshrepps 2012-2028. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 22. nóvember 2011 16:54

Umsagnir um drög að aðalskipulagstillögu Mýrdalshrepps 2012-2028 verða birtar á vefnum, með leyfi höfunda. Sendið umsagnir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið viljið fá umsögn ykkar birta á www.myrdalur.is.

Opinberir aðilar

Umhverfisstofnun
Vegagerðin

Félagasamtök

Landvernd
Fuglavernd
Samtök verslunar og þjónustu

Einstaklingar

Sjö einstaklingar sem eru íbúar og eigendur fasteigna og lands í Mýrdalshreppi
Eigendur Þórisholts og Þórisholts ehf. um breyttri legu þjóðvegar 1 og drög að umhverfisskýrslu
Eigendur Þórisholts og Þórisholts ehf. um þjónustusvæði á suðurbrún Reynisfjalls, (V15 ýmis ferðaþjónusta við Reynisfjall)
Íris og Ívar, Þórisholti
Umsögn frá Vatnsskarðshólum
Umsögn frá Hryggjum
Fimm eigendur Djúpaleitis
Íbúar í Sigtúni 1, Vík
Gunnar Á Gunnarsson
Sandra Lee Best
Erla Bil Bjarnardóttir
Guðrún María Gunnarsdóttir
Óskar Ólafsson og Margrét S. Gunnarsdóttir
Ingi S Ingason
Ólafur Jónsson
Kjartan Jónsson

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 08. desember 2011 22:45
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10

Skráning á póstlista




Teljari

mod_vvisit_counterÍ dag2
mod_vvisit_counterÍ gær18
mod_vvisit_counterÞessa viku92
mod_vvisit_counterSíðustu viku168
mod_vvisit_counterÞennan mánuð212
mod_vvisit_counterSíðasta mánuð932
mod_vvisit_counterÍ heild27036

Tengdir (síðustu 20 mín): 1
Í dag er: feb 09, 2012