|
Áætlun Siglingastofnunar um veghæð og hæð sjóvarnar fyrir vegstæði framan við Vík í Mýrdal. |
|
|
|
|
Skrifað af: Kjartan Jónsson
|
|
Mánudagur, 21. nóvember 2011 00:00 |
|
Að beiðni Vegagerðarinnar hefur Siglingastofnun gert grófa áætlun eða minnisblað um veghæð og hæð sjóvarnar fyrir vegstæði framan við Vík í Mýrdal. Áætlunin er dagsett í október 2011.
Í inngangi minnisblaðsins er áréttað er að um grófa áætlun sé að ræða og nauðsynlegt að skoða hina ýmsu þætti og samlíkur þeirra nánar áður en endanleg hæðasetning fer fram. Áætlunin er í viðhengi hér að neðan.
Hér er stuttur útdráttur með helstu niðurstöðum minnisblaðsins:
- Suðurströnd Íslands er meðal þeirra strandsvæða í heiminum þar sem öldur eru hæstar. Ströndin við Vík er eins langt frá því að vera í jafnvægi sem verið getur. Því er töluverð óvissa um það hvort eða hvar ströndin nær jafnvægi, hvort að það náist að stöðva rofið við núverandi sjávarkamb eða við varnarlínuna sem er nokkrum tugum metra innar.
- Á árunum 1992 til 1995 [...] var skilgreind varnarlína þar sem fyrst yrði gerð flóðavörn og síðar ef nauðsynlegt reynist ölduvörn til varnar landbroti.
- Vegstæði það sem verið er að skoða í skýrslu þessari er utan við varnarlínuna.
- Eins og í flestum sveitarfélögum landsins eru nokkur hæðakerfi í notkun. Sjókerfið eða hafnarkerfi sem Siglingastofnun notar miða við að „núllið“ sé um 0,1 m neðan við stórstraumsfjöru.
- Í þessu minnisblaði eru allar hæðir gefnar í sjókerfi, hæðakerfi Siglingastofnunar.
- Hæð sjávarkambsins í Vík framan við íþróttavöllinn þar sem mest mæðir á er í um +7,0 til +7,5 m hæð.
- Hér er það metið svo að veghæðin eigi að vera á bilinu +6,5 m til +7,5 m með sjóvörn sem sé um 0,6 m hærri eða í kóta +7,1 m til +8,1 m.
- Veghæð í göngum þar sem komið er út úr Reynisfjalli við Vík þarf að taka tillit til sjávarstöðuhækkana vegna gróðurhúsaáhrifa.
- Veghæð í göngum þarf að taka við af hæstu mögulegu sjávarstöðu á líftíma gangnanna auk upprennslis. Samkvæmt ofangreindu er sá kóti ekki lægri en +10,0 m í sjókerfi.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 29. apríl 2012 15:05 |