Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Fjöldi ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi 2001-2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Föstudagur, 09. desember 2011 12:20

Hér eru upplýsingar um fjölda ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi árin 2001-2010.

Á þessu tímabili hefur leiðin Vík-Jökulsá lokast að meðaltali í 0,7 daga á ári og Mýrdalssandur hefur lokast í 0,4 daga á ári. Í 5 ár af 10 lokuðust leiðirnar aldrei af völdum veðurs eða ófærðar.

Taldir eru með dagar þar sem er ófært/lokað í 5 klst. eða meira. Það breytir litlu að taka með alla daga þar sem er ófært, sama í hversu stuttan tíma - við það bætast við örfáir dagar með ófærð/lokun í stuttan tíma (0-60 mín.) snemma á morgnana. Ekki liggja fyrir upplýsingar um nákvæmlega hvar á þessum tveimur leiðum var ófært/lokað.

2001: Engin lokun
2002: Einn dagur í mars vestan og austan Víkur
2003: Einn dagur í janúar vestan og austan Víkur
2004: Engin lokun
2005: Einn dagur í janúar austan Víkur (vatnavextir) og einn dagur í janúar vestan Víkur (snjór).
2006: Engin lokun
2007: Engin lokun
2008: Einn dagur í janúar, einn í febrúar og einn í mars vestan Víkur
2009: Engin lokun
2010: Einn dagur í febrúar vestan og austan Víkur

Ofangreindar upplýsingar eru frá upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, G. Pétri Matthíassyni.

Samkvæmt upplýsingum frá svæðisskrifstofu Vegagerðarinnar á Selfossi hafa þessar leiðir ekki lokast það sem af er árinu 2011 þrátt fyrir þæfingsfærð og skafrenning síðustu daga (skrifað 9. desember).

 

Skráning á póstlista




Teljari

mod_vvisit_counterÍ dag11
mod_vvisit_counterÍ gær28
mod_vvisit_counterÞessa viku240
mod_vvisit_counterSíðustu viku231
mod_vvisit_counterÞennan mánuð792
mod_vvisit_counterSíðasta mánuð987
mod_vvisit_counterÍ heild30224

Tengdir (síðustu 20 mín): 3
Í dag er: maí 20, 2012