Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Kynningarfundur með landeigendum um nýja veglínu 5. janúar 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 10. janúar 2012 08:22

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps bauð landeigendum á svæði væntanlegrar nýrrar veglínu um Mýrdal til kynningarfundar um málið í Leikskálum fimmtudaginn 5. janúar kl. 20:00. Til fundarins var boðað á vef sveitarfélagsins, www.vik.is, þriðjudaginn 3. janúar. Í fundarboði segir: Á fundinum verða lagðar fram og kynntar nákvæmari teikningar af þeim svæðum sem væntanlegur vegur fer um.

Í upphafi fundar las Guðni Einarssons frá Þórisholti upp yfirlýsingu frá 10 landeigendum og gekk síðan af fundi. Að yfirlýsingunni standa eftirtaldir landeigendur:

Ásmundur Sæmundsson Hryggjum
Þorsteinn Gunnarsson Vatnskarðshólum
Eva Dögg Þorsteinsdóttir Garðakoti
Helgi Númason Norðurgarði
Atli Hróbjartsson Brekkum
Guðni Einarsson Þórisholti
Grétar Einarsson Þórisholti
Guðrún María Gunnarsdóttir Reynisholti 2 og 3
Ólafur Guðjónsson Kvíabóli
Jakobína Ragnarsdóttir Görðum


Yfirlýsingin er hér að neðan.

Minnisblað sem sveitarstjóri ritaði eftir fundinn er í viðhengi.



Viðtakandi:

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps
Austurvegi 17
870 Vík

Við undirritaðir landeigendur í Mýrdalshreppi lýsum furðu okkar á vinnubrögðum skipulags- og byggingarnefndar við boðun kynningarfundar um nýja veglínu með landeigendum í Mýrdal í kvöld.

Til fundarins er boðað með einungis tveggja daga fyrirvara með tilkynningu á vef sveitarfélagsins þrátt fyrir að fundurinn hafi verið löngu ákveðinn samanber fundargerð nefndarinnar frá 8. desember, en hún var ekki birt á vef sveitarfélagsins fyrr en í gær, 4. janúar.

Þessi stutti fyrirvari er óskiljanlegur. Svo virðist sem skipulags- og byggingarnefnd ætlist til þess að landeigendur og aðrir hagsmunaaðilar fari daglega inn á vef sveitarfélagsins til að athuga hvort þeir séu boðaðir á fund. Ætla mætti að þeir landeigendur sem ekki eru búsettir í sveitarfélaginu séu óvelkomnir þar sem fundurinn er boðaður með svo stuttum fyrirvara.

Í plagginu „Viðbrögð við athugasemdum“ dagsett í desember 2011 sem birt var á vef sveitarfélagsins í gær segir: „ ... unnt hefði verið að hafa enn meira samráð í skipulagsvinnunni en lög gera ráð fyrir. Til að bregðast við þessum ábendingum mun Mýrdalshreppur boða til fundar með landeigendum“.

Okkur er fyrirmunað að sjá að tilgangurinn með þessum fundi sé að bæta fyrir skort á samráði við landeigendur í skipulagsvinnunni. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. desember s.l. breytingu á aðalskipulaginu og framlagningu þess til Skipulagsstofnunar. Kynning á löngu teknum ákvörðunum sem teknar voru án viðhlítandi samráðs við okkur um nýja veglínu í gegnum eignarlönd okkar, sem við höfum mótmælt með sterkum rökum og greinargerðum, er ekki samráð, heldur framhald á þeim yfirgangi sem við og aðrir eigendur lands og fasteigna höfum mátt þola af sveitarstjórn Mýrdalshrepps.

Við mótmælum þessum vinnubrögðum sveitarstjórnar og skipulags- og byggingarnefndar Mýrdalshrepps harðlega og sjáum ekki tilgang í að taka þátt í sýndarmennsku af því tagi sem fundur þessi ber  augljósan vott um.

Í Mýrdalshreppi, 5. janúar 2012

Afrit:

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík

 

Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Minniblað frá kynningarfundi um nýja veglínu um Mýrdal.pdf)Minniblað frá kynningarfundi um nýja veglínu um Mýrdal 176 Kb
Síðast uppfært: Laugardagur, 04. febrúar 2012 19:58
 

Skráning á póstlista




Teljari

mod_vvisit_counterÍ dag12
mod_vvisit_counterÍ gær28
mod_vvisit_counterÞessa viku241
mod_vvisit_counterSíðustu viku231
mod_vvisit_counterÞennan mánuð793
mod_vvisit_counterSíðasta mánuð987
mod_vvisit_counterÍ heild30225

Tengdir (síðustu 20 mín): 4
Í dag er: maí 20, 2012