|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Þriðjudagur, 03. febrúar 2009 18:02 |
|
Heimasíðan Mýrdalur.is Heimasíðan er fræðslu- og umræðuvettvangur Samtaka íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal. Samtökin eru grasrótarhreyfing þeirra sem vilja ábyrgar skipulags- og samgöngubætur um héraðið í sátt við umhverfi, lífríki og samfélag.
Samtök íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal hafa sett upp þessa heimasíðu til að upplýsa almenning, atvinnulíf og stjórnvöld innan og utan héraðs um möguleg áhrif breyttrar legu þjóðvegar um Mýrdalinn. Með því vilja samtökin ennfremur stuðla að auknum rannsóknum á svæðinu og fyrirbyggja óafturkræft tjón á náttúruverðmætum, menningarminjum og fasteignum á svæðinu. Við hvetjum lesendur til að hafa samband hafi þeir ábendingar um efni til birtingar á síðunni.
Samgöngubætur í sátt við umhverfið
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur á undanförnum árum unnið að gerð tillögu um aðalskipulag sveitarfélagsins. Í sambandi við þá vinnu komu fram ólíkar hugmyndir um samgöngubætur fyrir héraðið og hvar gera skuli ráð fyrir framtíðar legu þjóðvegar 1 um héraðið. Annars vegar eru tillögur um að endurbætur á núverandi þjóðleið verði settar inn í aðalskipulagstillöguna. Hins vegar eru tillögur um að færa leiðina mun sunnar en nú er með gerð jarðganga um Reynisfjall og nýlögn vegar um Víkurfjöru og votlendið við Dyrhólaós. Um þessar tvær leiðir er nú deilt. Samtök íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal vilja (1) endurbæta núverandi þjóðleið um Mýrdalinn, (2) vernda votlendi, fjörur, fuglalíf og fágæt vistkerfi gegn óafturkræfu tjóni og (3) standa vörð um forn byggðahverfi, fasteignir og sjálfbær nytjalönd í Mýrdal. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 09. febrúar 2009 20:21 |