| Opið bréf til Mýrdælinga |
|
|
|
| Skrifað af: Evu Dögg |
| Miðvikudagur, 01. apríl 2009 00:00 |
|
Kæru sveitungar
Við búum öll hér í 500 manna sveitarfélagi. Við erum eins og ein stór fjölskylda og heimilið okkar er þessi landlitla en fallega sveit syðst á landinu. Ég fann mig knúna til að skrifa nokkur orð til ykkar, til umhugsunar, því ég get ekki lengur orða bundist yfir framkomu og hegðun margra, meðal okkar sem fullorðnir teljast. Ég er menntuð sem þroskaþjálfi og hef unnið mikið með börnum. Eitt af því sem mér finnst mikilvægast í uppeldi barna er að þau öðlist sterka siðferðisvitund, hún er grundvöllur svo margs í lífinu og undirstaða margra góðra gilda eins og virðingar fyrir öðrum, kurteisi, tillitsemi o.s.frv. Ég hef trú á því að ef við kennum börnunum okkar slík gildi þá munum við búa í betra samfélagi. Ef við líkjum heimili okkar við minnstu útgáfu af samfélagi gætum við spurt okkur hvernig heimilisbragurinn væri ef við viðhefðum ekki þessi gildi, ef við bærum ekki virðingu hvert fyrir öðru inn á heimilinu, sýndum hvert öðru enga tillitsemi og værum ókurteis við hvert annað. Ég reikna með því að allir séu sammála um að við eigum að virða þessi gildi og að þau séu okkur býsna mikilvæg. Við sem erum með börn erum örugglega öll að reyna að ala börnin okkar upp með þessi gildi til hliðsjónar auk margra annarra góðra gilda. Það sem við þurfum líka að hafa í huga er að við erum fullorðið fólk og erum því fyrirmyndir og verðum að haga okkur eftir þessum gildum ef við ætlum að kenna börnunum okkar þau. En við erum manneskjur og það rennur blóð í æðum okkar og vitanlega getum við gert mistök, en við þurfum þá að vera menn til að viðurkenna og bæta fyrir það. Ég hlýddi áfyrirlestur í grunnskólanum þar brýnt var fyrir börnunum að taka ekki þátt í einelti á internetinu, þau væru ábyrg fyrir því sem þau skrifuðu á netið, þau skildu aldrei taka þátt í því að skrifa illa um annað fólk því það væri eins og að leggja einhvern í einelti frammi á gangi í frímínútum. Þetta er einn liður í að skerpa siðferðisvitund barna okkar og kenna þeim góð gildi. Þegar ég kom heim af fyrirlestrinum fór ég í póstkassann, kíkti á póstinn og skoðaði héraðsblaðið okkar, Vitann. Rek ég þá augun í enn einn lífríkisspíru - lofsönginn og svo texta þar fyrir neðan. Hver er tilgangurinn með slíkum skrifum? Ég er hrædd um að það yrði litið alvarlegum augum ef upp kæmist að barnið okkar hefði markvisst samið slíkan texta og birt í fleiri, fleiri vikur, þar sem barnið setti gagngert saman níð um ákveðin hóp, þar sem ákveðin hópur af fólki væri uppnefndur og reynt að gera lítið úr skoðunum hans. Væri barnið að fylgja þeim gildum sem við vildum kenna því? Væri barnið að sýna öðrum virðingu? Nei klárlega ekki. Væri barnið að sýna kurteisi og tillitsemi ? - Nei klárlega ekki. Það yrði trúlega tekið hart á slíku máli og litið á það sem mikið agabrot. Hvert stefnir samfélagið okkar ef við ætlum að fara að temja okkur svona framkomu, viljum við koma svona fram hvert við annað? Við eigum að hafa skoðanir á hlutunum og geta rökrætt okkar á milli en grundvallaratriðið er að við getum borið virðingu fyrir hvert öðru og skoðunum hvers annars. Hvað finnst ykkur? En við þessi stóra fjölskylda, sem deilum sama heimilinu, Mýrdalshreppi. Við ættum að teljast vera lánsöm að geta stýrt okkar litla samfélagi sjálf og kosið okkur fulltrúa í sveitastjórn á fjögurra ára fresti. Sveitastjórnar - og nefndarmönnum, er svo skylt að vinna eftir ákveðnum vinnureglum í störfum sínum, gæta hlutleysis og skoða allar hliðar þeirra mála sem upp koma. Þeir þurfa því að hafa sterka siðferðisvitund og taka ákvarðanir eftir sinni bestu sannfæringu, því aðalmarkmið hjá sveitarstjórn hlýtur jú alltaf að vera að búa til betra samfélag, okkur til heilla. En við erum náttúrulega missammála um hvernig sveitastjórn okkar tekst til með að ná því markmiði. Þó svo við búum hér öll saman og getum litið á okkur sem eina stóra fjölskyldu þá geta 500 einstaklingar að sjálfsögðu aldrei verið alveg sammála um þau mál sem verið er að fjalla um og afgreiða, má þar nefna vegamálin hér í Mýrdal. Þið sem eruð í Betri byggð viljið veglínu 3. Ég get alveg borið virðingu fyrir þeirri skoðun, þó svo ég sé á engan hátt sammála henni. En ég get hins vegar með engu móti sætt mig við eða borið virðingu fyrir þeirri framkomu og hegðun sem ákveðnir aðilar innan Betri byggðar hafa tamið sér í þessu máli. Ég hef það sterka siðferðisvitund að mér er algerlega misboðið og ef slík hegðun sæist hjá börnum væri hún litin mjög alvarlegum augum. Hvernig viljum við að sveitarstjórn og nefndir hennar vinni úr slíkum álitamálum eins og varðandi veglínu gegnum sveitina okkar? Eruð þið sammála því að sitja eigi um fulltrúa okkar í sveitarstjórn og nefndum hennar og beita þá svo miklum þrýstingi, að staðið sé yfir þeim heima, í vinnu, í kaffitímum og frítímum? Viljum við að það sé setið yfir því þangað til það, eðlilega, kiknar undan þrýstingi og skiptir um skoðun, eða það fær upp í kok af stjórnsýslumálum og býður ekki fram krafta sína aftur í þágu samfélagsins? Hvernig haldið þið að það sé fyrir ungt fólk að fara inn í sveitastjórn eða nefndir og vilja láta gott af sér leiða. En eiga svo yfir höfði sér ákveðna aðila sem sitja yfir manni allastaðar, í vinnunni og heima, það er hvergi friður og hvergi skjól ef maður er ekki á sömu skoðun? Þetta er ekkert annað en andlegt ofbeldi, slík hegðun meðal barna kallast einelti. Ég kæri mig ekki um að sveitafélaginu sé stýrt á þennan hátt, það eru ekki þau gildi sem ég vil sjá á okkar heimili, hjá okkar 500 manna fjölskyldu hér í Mýrdalshreppi. Hvað viljið þið? Viljum við sjá unga fólkið okkar ganga til liðs við slíka aðila, því þar fái það skjól og frið, þó svo innst inni séu skoðanir þess aðrar? Er það svona sem við viljum að sveitafélaginu sé stýrt - er þetta réttlæti? Viljið þið sem eruð skráð í samtökin Betri byggð beita ykkur fyrir veglínu 3 á þennan hátt? Viljið þið vera þátttakendur í slíkum vinnubrögðum og láta þau viðgangast? Einnig hefur borið á því á fundum og í blaðaviðtölum að ákveðnir aðilar bera á borð fyrir alþjóð algerar lygar. Mér er óskiljanlegt hvernig þetta er hægt, hvernig fullorðið fólk getur komið svo óheiðarlega fram. Sem betur fer höfum við í Samtökum íbúa- og hagsmunaaðila í Mýrdal, komið heiðarlega fram, við erum hreinskilin og viljum að unnið sé eftir lögum og reglugerðum. Við viljum að hlutirnir séu skoðaðir heildstætt og á hlutlausan hátt Við viljum að viðhöfð séu rétt- og réttlát vinnubrögð og að þessi grundvallarsiðferðisgildi séu virt. En hvað viljið þið kæru sveitungar? Hvernig viljið þið hafa heimilisbraginn í sveitafélaginu? Hvaða gildi viljið þið hafa í sveitafélaginu? Eigum við ekki að treysta og gefa fulltrúum okkar í sveitastjórn og nefndum hennar svigrúm og frið til að vega og meta á hlutlausan hátt hvað er okkur fyrir bestu? En við eigum að sjálfsögðu að hafa skoðanir á hlutunum og koma þeim á framfæri við sveitunga okkar og sveitastjórn, við eigum að rökræða okkar á milli og sýna að við erum hugsandi fólk. Við eigum að gefa sveitastjórn það aðhald sem hún þarf til að halda uppi fagmennsku og hlutleysi í störfum sínum og vera vakandi fyrir því að hún framfylgi lögum og reglum. En við skulum ekki falla í þá gryfju að gleyma því að við erum fullorðið fólk sem á að hafa siðferðisvitund og vera fyrirmynd fyrir komandi kynslóðir. Við vinnum lítið á skítkasti og óheiðarlegum vinnubrögðum. Eins og ég segi við öll börnin mín sem koma og dvelja hér hjá okkur í lengri eða skemmri tíma:,, Það kemur alltaf í bakið á manni á endanum ef maður er óheiðarlegur og kemur illa fram." Ég vona svo sannarlega að þið séuð flest sammála mér og að þið sjáið í gegnum það hvernig búið er að vinna í þessu máli. Ég hvet ykkur til að taka ekki þátt í slíkum vinnubrögðum og vona að þið gerið ykkur grein fyrir afleiðingum þess ef slík vinnubrögð eiga að fara að viðgangast hér í þessu litla sveitafélagi okkar. Að lokum vil ég segja:,,Brýnum siðferðisvitund okkar og höldum góðum gildum á lofti, það er grunnur að góðu samfélagi". Bestu kveðjur Greinin birtist í Vitanum miðvikudaginn 1. apríl, 2009 |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 23. apríl 2009 11:18 |