| Umsagnir lögbundinna umsagnaraðila um aðalskipulagstilllögu Mýrdalshrepps 2009-2025 |
|
|
|
| Umsagnir |
| Skrifað af: Kjartan Jónsson |
| Sunnudagur, 06. september 2009 19:58 |
|
Umsagnir lögbundinna umsagnaraðila um tillögu að aðalskipulagi 2009-2025, sem borist hafa skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, er að finna í viðhengjum neðst á þessari síðu. Lesendur eru hvattir til að kynna sér umsagnirnar vel. Skipulagstillagan í heild sinni er á vef sveitarfélagsins, www.vik.is. Hér eru tilvitnanir í nokkrar umsagnir: Umhverfisstofnun: „Með því að velja Leið 3 er valin veglína sem að hluta er inni á svæði á náttúruminjaskrá. Umhverfisstofnun ítrekar umsögn sína frá 17. febrúar 2006 þar sem fram kemur það mat Umhverfisstofnunar að vernda eigi Dyrhólaey, Dyrhólaós, fjörur við Dyrhólaey, þ.m.t. Reynisfjöru, og votlendi norðan Dyrhólaóss sem eina heild, enda um að ræða svæði sem er mikilvægt fyrir fuglalíf og svæði sem nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna. Auk þess er þar að finna vistkerfi sem leggja ber áherslu á að vernda samkvæmt stefnumörkun íslenskra stjórnvalda.″„Fram kemur að eitt af starfsmarkmiðum aðalskipulagsins 2009-2025 sé að: „það verði tekið tillit til stefnumörkunar Umhverfisstofnunar og náttúruverndar í héraði.″ Að mati Umhverfisstofnunar næst þetta markmið ekki og vísar stofnunin til framangreindrar umsagnar þar sem skýrt kemur fram álit Umhverfisstofnunar um staðsetningu veglínu fyrir væntanlegan hringveg um Mýrdal og í nágrenni Víkur. Að mati Umhverfisstofnunar er ekki tekið tillit til þess álits stofnunarinnar að vernda beri svæði nr. 708 á náttúruminjaskrá og votlendi norðan við Dyrhólaós sem eina heild.″ Vegagerðin: „Til að verja Hringveginn nærri fjörunni [þ.e. Víkurfjöru, innskot] og tryggja þannig samgöngur um svæðið, þarf enn voldugri varnargarð, allt að 5m hærri en ella. Hringvegurinn hefur sérlega stóru hlutverki að gegna varðandi flóttaleiðir við Kötlugos. Vegagerðin telur umferðaröryggi vegfarenda síður tryggt verði Hringvegurinn sunnan byggðarinnar í Vík en ofan hennar.″ „Jafnframt skal vakin athygli á 29. grein Vegalaga nr. 80/2007: „Ef þjóðvegi er að ósk sveitarstjórnar valin annar staður en Vegagerðin telur æskilegt og það leiðir til aukins kostnaðar er heimilt að krefja viðkomandi sveitarfélag um kostnaðarmun″.″ Fornleifavernd ríkisins:
„Samkvæmt lögum á að fornleifaskrá allt sveitarfélagið á vettvangi fyrir aðalskipulag. Svæðisskráning sem byggir á ritheimildum er ekki nægjanleg. Ef ekki er hægt að ráðast í aðalskráningu fornleifa í öllu sveitarfélaginu vegna óskilgreindrar ástæðu ber að skrá fornleifar á þeim svæðum þar sem aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir að komið geti til jarðrasks.″ <!--[if !supportEmptyParas]--><!--[endif]--> „Á bls. 12 í Greinargerðinni er tekið fram að fornleifaskráningu sé lokið í Vík og nágrenni. Ekki hafa fundist skýrslur þess efnis hjá FVR. Útgefnar skýrslur eru aðeins tvær og ná yfir lítinn hluta sveitarfélagsins [...] ″ Landgræðslan: „Ekki hefur verið leitað samráðs við Landgræðslu ríkisins á síðustu árum við gerð tillögu um aðalskipulag um þá fjölmörgu þætti í sveitarfélaginu er varða starfsemi stofnunarinnar og lögbundið hlutverk hennar″ |
| Síðast uppfært: Laugardagur, 26. nóvember 2011 06:33 |